sunnudagur, maí 03, 2009

Efnahagbandalagsborðtuskan - ókeypis uppskrift!


Efnahagsbandalagsborðtuskan

Þarfaþing á hverju heimili. Hentar jafn byrjendum sem lengra komnum, heitum Evrópusinnum, hatrömmum andstæðingum og óákveðnum. Falleg, fljótleg, gagnleg og tilvalin til gjafa.

Svo er hægt að velja sér lit eftir aðstæðum og áhugamálum. Sumir vilja eflaust sjatteringar við eldhúsinnréttinguna eða gardínurnar, sanntrúaðir sjálfstæðismenn velja að sjálfsögðu bláar tuskur og Liverpool aðdáendur rauðar. Nú græni litur sýnishornanna höfðar væntanlega til margra svo sem unnenda vors og gróanda, framsóknarmanna, Kópavogsbúa, bænda - og svo hefur þetta verið einn helsti tískulitur í fermingaskreytingum í mörg ár.


Uppskriftin er á pdf - formi og þá má sækja hana hér.

Hún er líka á ravelry.