
Verið þið alveg róleg - ég vann ekki í lotto, hvorki þessi innlenda né samnorræna. Hvað þá das eða síbs, þar hef ég aldrei átt miða.
Ég vann hvorki meira né minna en útilegustól í sumarleik Kjarvals - en það er sem sagt matvöruverslunin hérna í plássinu og plássunum í kring. Hreinræktuð dreifbýliskeðja sem sagt - en þegar stúlkan frá auglýsingastofunni (sem er í Kópavoginum) hringdi til að segja mér góðu fréttirnar þá spurði hún hálf vandræðalega hvort ég ,,byggi úti á landi" og hvort ég gæti fengið einhvern til að sækja stólinn fyrir mig. Þau gætu nefnilega eiginlega ekki sent út á land. Það finnst mér svolítið fyndið.



|