miðvikudagur, nóvember 11, 2009

Birtan


Morning light, originally uploaded by Harpa J.

í morgun var falleg

Rokk!


Drengurinn og vinir hans slógu algerlega í gegn á kaffihúsakvöldi félagsmiðstöðvarinnar í gærkvöldi. Þeir tryllu lýðinn með laginu Die, Motherfucker Die (án söngs reyndar) sem er miklu skemmtilegra en nafnið gefur til kynna - að minnsta kosti í flutningi þeirra.


Þessir snillingar áttu ekki síður salinn þegar þau fluttu hið þekkta lag Cohens Hallelujah , með íslenskum texta. Þau eru fulltrúar okkar á Samsuð keppninni - forkeppni Suðurlands fyrir Samfés - söngvarakeppni félagsmiðstöðva.

mánudagur, nóvember 09, 2009

Drangar dagsins


Today's rock picture, originally uploaded by Harpa J.

Æði



Eru þær ekki frábærar! Þær eru rétt byrjaðar að æfa og strax orðnar svona flinkar!

Æði







Hafdís

Ég kláraði þennan kjól fyrir löngu (fyrir Tinnukeppnina eins og einhverjir muna kannski) en hef ekki haft tækifæri til að taka mynd af honum á snúllunni fyrr en núna. Reyndar ætlaði ég að taka fína útimynd - en veðrið bauð ekki upp á það. Þá var meiningin að finna sæmilegan bakgrunn innanhúss, en daman var ekki í stuði - svo tröppurnar fyrir framan klósettið verða bara að duga!

sunnudagur, nóvember 08, 2009

Úti


Walking, originally uploaded by Harpa J.

Sunnudagur





Það var ansi napurt í dag, en við drifum okkur í ,,sund" - það er að segja við létum pottinn nægja í þetta sinn. Þegar við vorum komin heim hringdi Ísbíllinn fyrir utan og hann fór ekki erindisleysu að okkar húsi...

Safnahelgin


Þeir voru alveg í fantaformi tónlistarskóladrengirnir, og vöktu mikla aðdáum í gær. Upplesturinn tókst líka prýðilega.

föstudagur, nóvember 06, 2009

Safnahelgi

Safnahelgi

Safnahelgi verður haldin í annað sinn á Suðurlandi helgina 5. -8. nóvember. Af því tilefni verður opið föstudagskvöldið 6. nóv. á Halldórskaffi þar sem gestir geta notið lifandi tónlistar frá Tónskóla Mýrdælinga.

Laugardaginn 7. nóv. verður opið frá kl. 15:00 – 17:00 í Brydebúð, menningarsetri okkar Mýrdælinga. Þar gefst gestum kostur á að skoða sýningarnar „ Gott strand eða vont....“ og Mýrdalur - Mannlíf og Náttúra og Sigrúnarstofu.

Kl. 15:45 mun Tónskóli Mýrdælinga flytja tónlist og Harpa Jónsdóttir vera með upplestur. (Þetta er auðvitað aðal málið. Húsbóndinn og drengurinn eru í fantaformi og ég ætla að lesa glænýtt efni)

Kakó/kaffi og vöfflur á Halldórskaffi á frábæru safnaverði.

Um kvöldið verður síðan Fýlaveisla á Ströndinni.

Velkomin á safnahelgi í Vík.

Hreinræktað mont

Ég átti alveg eftir að monta mig hérna megin var það ekki? Ef ekki þá monta ég mig bara tvisvar!
En það er sem sagt forsíðumynd eftir mig á nýjasta Knit circus tímaritinu. Ég veit að það er ekki Rolling Stone - en forsíða er alltaf forsíða samt sem áður. Uppskriftin (og módelið) eru kunnugleg fyrir fasta lesendur en það er grein eftir mig inni í blaðinu líka og fleiri myndir, m.a frá Ísafirði.

fimmtudagur, nóvember 05, 2009

Klappstýrulið Kötlu



Þessi mynd er tekin á annari æfingu klappstýruliðs Kötlu. Það vantar reyndar þrjár stelpur á myndina, flensan tók sinn toll og ein var á ferðalagi.

Okkur Magdalenu gengur ljómandi vel að þjálfa liðið, hún sér um allt þetta erfiða og ég stjórna teygjunum og slökuninni. Við látum hættulegu stökkin alveg vera en einbeitum okkur að danshlutanum og klapp ,,rútínunum". Stelpurnar eru stórefnilegar og við stefnum að sýningu fyrir jól.

Drangar dagsins


Today's rock picture, originally uploaded by Harpa J.

Eftir klappstýruæfinguna.

miðvikudagur, nóvember 04, 2009

Varnargarður


Vík, originally uploaded by Harpa J.

Þetta er nýji varnagarðurinn, byggður af heimafólki fyrir söfnunarfé.

Drangar dagsins


Today's rock picture, originally uploaded by Harpa J.

Veðurmynd dagsins í leiðinni. Það er sumarveður í dag og börnin ærast næstum af fögnuði. Fullorðnir líka, en meira svona innan í sér.

mánudagur, nóvember 02, 2009

Skógarfoss


Skógarfoss, originally uploaded by Harpa J.

Þarf nokkuð að segja um þetta?

Speglun


Reflection, originally uploaded by Harpa J.

Þetta er veðurmynd. Svona var kyrrt í gær. Og hlýtt líka í kaupbæti. Dásamlegt alveg hreint.